- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Úrgangur í fráveitu er ekki einungis vandamál í Reykjanesbæ heldur alls staðar á landinu. Auk þess að valda skaða á umhverfinu og rekstri fráveitukerfa, verða sveitarfélög fyrir miklum kostnaði þegar hreinsa þarf dælur og farga úrgangi sem berst í fráveitukerfin. Það erum jú við sem greiðum fyrir þjónustu við fráveiturnar – því meiri úrgangur, því meiri hreinsun þarf með tilheyrandi kostnaði.
Þegar álag er mikið aukast einnig líkur á bilunum í búnaði þannig að skólp fer óhreinsað út í sjó sem getur valdið hættu bæði fyrir menn og dýr. Þá hafa húslagnir einnig stíflast vegna blautklúta, en þá lendir kostnaður við úrbætur sem og óþægindi á íbúum og eigendum.
Verkefnið „bara piss, kúk og klósettpappír í klósettið“ er samvinnuverkefni Umhverfisstofnunar og Samorku í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisnefnda á landinu og er markmið þess að draga úr rusli í fráveitu og þar með álagi á umhverfið okkar.
Með því að standa saman höfum við tækifæri til að breyta hegðun okkar til langs tíma. Grípum tækifærið, gerum þetta rétt og verum með!
VISSIR ÞÚ að:
Leggjum okkar að mörkum, notum klósettið rétt og fræðum fólkið í kringum okkur!
Minnkum magn óæskilegra hluta sem berast í fráveituna og þar með tilfallandi kostnað!
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)