BAUN hefst á fimmtudag!

BAUN, barna- og ungmennahátíð verður haldin 2. – 12. maí. Á BAUN eru börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra sett í forgang og boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa.

Fylgist með á baun.is

Á fimmtudag hefst BAUN en orðið er skammstöfun fyrir barn annars vegar og ungmenni hins vegar. BAUN hefur auk þess táknræna merkingu þar sem baunir eru auðvitað fræ sem með réttri næringu og góðu atlæti springa út og breiða úr sér. Þannig er barna- og ungmennahátíð frjósamur jarðvegur fyrir börnin okkar og gefur þeim tækifæri til að rækta hæfileika sína og blómstra.

Allar upplýsingar um dagskrá BAUnar og einstaka viðburði má finna á vefslóðinni baun.is en einnig má fylgjast með gangi mála á facebooksíðu BAUNar, BAUN, barna og ungmennahátíð.

BAUNabréfið

Nú í vikunni verður öllum leikskólabörnum og grunnskólabörnum upp í 7.bekk afhent glænýtt BAUNabréf. Tilgangur þess er að hvetja börn og fjölskyldur til að fara á kreik og taka þátt í ýmsum skemmtilegum verkefnum og svara spurningum eða safna stimplum í bréfið sitt. Þátttökuseðli BAUNabréfsins er svo hægt að skila inn á valda staði og þá eiga börnin möguleika á að vera dregin úr potti og vinna til veglegra verðlauna.

Dagskrá

Fjölmargt spennandi er á dagskrá BAUNar en um 60 dagskrárliðir prýða hátíðina í ár. Má þar nefna Listahátíð barna og ungmenna í Listasafni Reykjanesbæjar í Duus safnahúsum þar sem gefur að líta listsköpun barna frá leikskóla og upp í framhaldsskóla. Hæfileikahátíð grunnskólanna fer fram í Stapa þar sem úrvalsatriði frá árshátíðum grunnskólanna eru sýnd og streymt samtímis í alla skóla bæjarins. Bangsar verða í stóru hlutverki á BAUN í ár og verður m.a. hægt að hanna föt á bangsann sinn, Skessuskokk verður á sínum stað, Poppbaunin fer fram með frábærum viðburðum í Rokksafni Íslands, skemmtilegar listsmiðjur verða haldnar, fjölskyldufjör fer fram í Fjörheimum, hægt verður að gróðursetja Óskabaun, leita að baunum með vasaljósi í Bókasafninu, kíkja í heimsókn í FAB Lab, smella sér í sundlaugarpartý, fá hestateymingu hjá Mána, fara í krakkajóga og að sjálfsögðu býður Skessan í lummur í tilefni BAUNar.

Allir með!

Við hvetjum fjölskyldur til að taka virkan þátt í BAUNinni 2024, halda af stað í ævintýraleiðangur með BAUNabréfið að vopni og eiga saman frábærar fjölskyldustundir. Til mikils er að vinna að fylla út í BAUNabréfið en heppnir þátttakendur fá í verðlaun trampolín og aukavinninga.

Góða skemmtun á BAUN.