- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
BAUN, barna- og ungmennahátíð Reykjanesbæjar, fer fram dagana 30. apríl – 10. maí. Á BAUN eru börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra sett í forgang og boðið upp á fjölbreytta og aðgengilega dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Fylgist með á baun.is
BAUN hefst fimmtudaginn 30. apríl en nafnið er skammstöfun fyrir barn annars vegar og ungmenni hins vegar. Það hefur jafnframt táknræna merkingu – baunir eru fræ sem með réttri næringu og góðu atlæti vaxa og dafna. Á sama hátt er BAUN frjór vettvangur þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að prófa sig áfram, taka þátt og blómstra.
Allar upplýsingar um dagskrá BAUNar og einstaka viðburði má finna á baun.is. Einnig verður hægt að fylgjast með á facebooksíðu BAUNar og á Instagram reikningi Reykjanesbæjar þar sem birtar verða daglegar upplýsingar um dagskrá.
BAUNabréfið
Nú í vikunni fá öll leikskólabörn og nemendur í 1.–7. bekk afhent BAUNabréf. Tilgangur þess er að hvetja börn og fjölskyldur til að fara á kreik, taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og safna stimplum eða leysa þrautir.
Í BAUNabréfinu kynnast börnin mismunandi stöðum og viðburðum í bænum og geta tekið þátt á sínum eigin forsendum. Þegar þátttökuseðill hefur verið fylltur út er hægt að skila honum inn á valda staði og eiga möguleika á að vinna vinninga.
Dagskrá
Fjölmargt spennandi er á dagskrá BAUNar í ár og eru allir hvattir til að kynna sér hana vel.
Meðal dagskrárliða eru:
Auk margs annars m.a. í bókasöfnunum, félagsmiðstöðvunum og víðar.
Allir með!
BAUN er þátttökuhátíð þar sem allir eru velkomnir og hvattir til að taka þátt. Við hvetjum fjölskyldur og vini til að bregða undir sig betri fætinum, upplifa dagskrána saman og skapa góðar minningar.
Góða skemmtun á BAUN!
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)