BAUN uppgjör og könnun

Takk fyrir þátttökuna í BAUN, barna- og ungmennahátíð

Síðustu tvær vikur hafa án efa verið töluvert annasamar hjá foreldrum og ömmum og öfum við að fylgja börnum sínum um bæinn og aðstoða þau við að leysa alls kyns þrautir, taka þátt í viðburðum og smiðjum og safna stimplum í BAUNabréfið sitt sem var eins konar leiðarvísir um hátíðina en um 30 dagskrárliðir voru á dagskrá hennar.

Þátttaka í hátíðinni hefur verið geysilega góð og mörg hundruð börn hafa tekið þátt á hverjum stað í hinum ýmsu viðburðum, smiðjum og þrautum sem boðið hefur verið upp á. Þá hafa nokkur þúsund manns komið við í Duus Safnahúsum og skoðað Listahátíð barna en hún mun standa áfram til 15.maí svo enn er tækifæri til að sjá sýningu allra leikskóla og grunnskóla í bænum auk listnámsbrautar Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Minnt er á að hægt er að skila stimpilsíðunni úr BAUNabréfinu út þessa viku í Duus Safnahús, Rokksafn Íslands, Bókasafnið og Sundmiðstöðina og freista þess að vinna glæsilegt trampólín.

Markmið hátíðarinnar eru m.a. þau að auka lífsgæði og vellíðan barna og íbúa Reykjanesbæjar og jafnframt að skapa vettvang fyrir börn og fjölskyldur til virkrar þátttöku í samfélaginu. Það er von okkar að það hafi tekist og að börn og fjölskyldur hafi átt frábærar stundir saman á BAUN.

Við viljum halda áfram að þróa BAUNina og óskum eftir ykkar aðstoð við það með því að svara örstuttri könnun um upplifun ykkar og barnanna ykkar af hátíðinni.

Taktu þátt í könnun