- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Hagleiks- og listamaðurinn Jón Adolf Steinólfsson er byrjaður að saga bergrisann, einn landvætanna, út úr klettagrjóti frá Helguvík. Hér er kominn einn af fjórum landvættunum, sá er óð út í sjóinn sunnan við land.
Á svæði Víkingaheima mun 8 metra bergrisi, líkt og í skjaldarmerkinu, trjóna á útnesinu í Njarðvíkinni við sýningarhús víkingaskipsins Íslendings.
Hinar landvættirnar voru griðungur, gammur og dreki.
Hugmyndin um landvættirnar fjórar á sér fyrirmynd í kerúbum sem Gyðingar hugsuðu sér að héldu vörð um guð. Í kristnum sið urðu þessi andlit tákn guðspjallamannanna fjögurra.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)