Björgin 5 ára í dag

Frá starfi í Björginni
Frá starfi í Björginni

Björgin - Geðræktarmiðstöð Suðurnesja er 5 ára í dag, 4. febrúar.

Af því tilefni mun stofnunin gera sér glaðan eftirmiðdag og fagna útgáfu bókarinnar Hughrif sem félagar í Björginni eru að gefa út.
Höfundar fá afhent eintök af bókinni og nokkrir þeirra munu lesa ljóð sín.

Boðið verður uppá léttar veitingar og notalega stemningu í Björginni Suðurgötu 15 frá kl:14:00 -15:30.

Allir velkomnir.