- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Greinilegt er að börn í leikskólum Reykjanesbæjar eru betur undirbúin undir grunnskólagöngu en áður. Þau þekkja betur ýmis stærðfræðihugtök og eru tilbúnari til lestrarnáms nú en áður.
Ásgerður Þorgeirsdóttir skólastjóri Njarðvíkurskóla segir að hluta framfara í læsismálum í grunnskólum í bænum megi rekja til þess að áherslur eru breyttar í leikskólum.
Aðspurð segir Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi að allir leikskólar á Reykjanesi leggi nú áherslu á grunnþættina stærðfræði og læsi frá tveggja ára aldri og það skili sér bæði í áhugasamari og betur undirbúnum nemendum við upphaf grunnskólagöngu.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)