Börn og ungmenni geta núna tilkynnt sjálf til barnaverndar

Sem hluti af innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur verið innleiddur tilkynningarhnappur í allar spjaldtölvur grunnskóla Reykjanesbæjar.

Samkvæmt 12. gr. sáttmálans skal tryggja rétt barna til að taka þátt í stefnumótun og ákvarðanatöku í öllum málum sem þau varða. Ungmennaþing Reykjanesbæjar 2021 sýndi fram á að börn og ungmenni í sveitarfélaginu vilja fá fleiri tækifæri til að hafa árif á starfsemi þess og þau málefni sem þau varða. Aðgerð var mótuð með þetta í huga og úr varð aðgerð nr. 3 í aðgerðaáætlun fyrir innleiðingu í Barnasáttmálanum hjá Reykjanesbæ. Í henni felst að móta leiðir fyrir börn og ungmenni til að koma sínum skoðunum á framfæri. Tilkynningarhnappur barnaverndar var komið fyrir í spjaldtölvum grunnskóla sveitarfélagsins en með honum geta börn og ungmenni að eigin frumkvæði og án milligöngu fullorðinna tilkynnt til barnaverndar telji þau sig eða einhvern annan vera í hættu. Einnig hefur verið innleitt aðgengilegri ábendingagátt hjá sveitarfélaginu sem auðveldar öllum, þar með talin börn og ungmenni að senda inn ábendingu.

Allar ábendingar sem berast fara í formlegt ferli innan stjórnsýslunnar samkvæmt útgefnum verklagsreglum skjaladeildar og barnaverndar Reykjanesbæjar.

Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir verkefnastjóri Barnvæns sveitarfélags og Halldóra Mjöll Ingiþórsdóttir fulltrúi ungmennaráðs Reykjanesbæjar kynntu tilkynningarhnappinn fyrir nemendum í Heiðarskóla og voru veggspjöld formlega afhent skólanum en allir grunnskólar munu fá eintök til þess að hengja upp á veggi innan skólanna. Einnig munu nemendur fá fræðslu í skólunum um Barnasáttmálann og tilkynningarhnappinn.