Breyting á svæðisskipulagi Suðurnesja

Mynd af svæðinu sem fellur undir svæðisskipulag Suðurnesja.
Mynd af svæðinu sem fellur undir svæðisskipulag Suðurnesja.

Lögð er fram til kynningar verkefnislýsing vegna breytinga á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008 - 2024 sbr. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingar felast í breyttri afmörkun vatnsverndarsvæða í Reykjanesbæ og nýs flugbrautarkerfis Keflavíkurflugvallar.

Verkefnislýsing er aðgengileg á skrifstofu SSS, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ, á vefsíðu SSS og á vefsíðum sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna má skila til skrifstofu SSS eða á netfangið sss@sss.is. Æskilegt er að þær berist fyrir 20. ágúst 2018.

Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja,
Ólafur Þór Ólafsson, formaður.

 

Breyting á svæðisskipulagi Suðurnesja - verkefnislýsing