Þjónustuver Reykjanesbæjar mun loka klukkan 15:00 á föstudögum frá og með 8. janúar.
Nýr opnunartími þjónustuvers Reykjanesbæjar
Mán - fim frá klukkan 9:00 til 16:00
Föstudaga frá klukkan 9:00 til 15:00
Reykjanesbær fagnar styttingu vinnuvikunnar sem stuðlar að aukinni velferð starfsfólks, bætir vinnustaðamenninguna og styður við samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs.