Byggingarréttur við Stapabraut 15 til sölu

Reykjansbær auglýsir til sölu byggingarrétt á lóð við Stapabraut 15. Um er að ræða 13.950 m² lóð sem samkvæmt aðalskipulagi er skilgreind fyrir verslun og þjónustu, þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttum rekstri sem ekki er í samkeppni við nær þjónustu.

Helstu upplýsingar:

  • Stærð lóðar: 13.950 m²
  • Byggingarmagn til viðmiðunar: 6.277 m²
  • Notkun: Verslun og þjónusta
  • Lágmarksverð: 6.000 kr/m²
  • Lágmarksboð í byggingarrétt miðað við framangreint: 37.665.000 kr.

Athygli er vakin á að hér er um að ræða sölu á byggingarrétti en ekki lóðinni sjálfri. Gerður verður lóðarleigusamningur sem kveður á um réttindi og skyldur lóðarhafa.

Skilmálar og framkvæmd

  • Deiliskipulag verður unnið af lóðarhafa
  • Umsókn skal ná til alls byggingarmagns
  • Opinber gjöld (t.d. gatnagerðagjöld og byggingarleyfi) eru ekki innifalin í útboði

Við mat á umsóknum verður 70% byggt á tilboði í byggingarrétt og 15% byggt á gæðum tillögu og 15% byggt á samfélagslegum ávinningi.

Hæfi umsækjenda

  • Eingöngu lögaðilar geta sótt um lóðina
  • Heimilt er að fleiri en einn lögaðili standi saman að umsókn

Sótt er um hér: uthlutun@reykjanesbaer.is
Umsóknafrestur er til: 27. apríl

Reykjanesbær áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum sem berast.

Úthlutunarskilmálar