Bylting í íbúalýðræði hjá Reykjanesbæ

Skjáskot af vefnum.
Skjáskot af vefnum.

Fyrir síðustu áramót setti Reykjanesbær í loftið íbúavef þar sem íbúar
geta komið með ábendingar  og tillögur sem eru strax sendar til viðkomandi nefndar til umfjöllunar, ef tilskilinn fjöldi mælir með ábendingunni.  Sérstaða þessa vefjar er ekki síst fólgin í því að starfsmaður Reykjanesbæjar vaktar vefinn og setur inn upplýsingar um afdrif hugmyndar eða hvar hún er stödd. Nú þegar hefur íbúi farið alla leið með slíka hugmynd sína og hugmyndin fengið góðar viðtökur í umhverfis- og
skipulagsráði. Fleiri íbúar eru að fá góð viðbrögð við hugmyndum sínum frá
samborgurum og viðbúið að hugmyndir þeirra fari fljótlega beint inn til
viðkomandi nefnda.

Á fundi sem Árni Sigfússon bæjarstjóri hélt í Höfnum í gærkvöldi sagði hann:
„Þetta er liður í að efla raunverulegt íbúalýðræði þar sem íbúar geta komið
með sínar ábendingar eða hugmyndir og þær  þurfa lágan þröskuld til að fá
umfjöllun ráða og jafnvel verða að tillögum í bæjarstjórn“.

Á fundinum var vefurinn kynntur og þar kom einnig fram að á heimasíðu bæjarins sé hægt að finna upplýsingar um íbúavefinn og íbúar geti strax farið að hafa áhrif.

http://rnb.ibuavefur.is/forum/