Nýtt akkeri - Akademíureiturinn

Framtíðarsýnin er hér!

Reykjanesbær vinnur að spennandi framtíðarsýn fyrir nýja samfélagsmiðju á Akademíureitnum. Upplýsingar um verkefnið og næstu skref verða birtar hér á vefnum eftir opið hús sem haldið verður laugardaginn 8. nóvember kl. 13:00-17:00 í Íþróttaakademíunni.

Við hvetjum íbúa og alla áhugasama til að mæta á opna húsið, kynna sér tillögurnar og koma sínum athugasemdum og hugmyndum á framfæri.

Hlökkum til að sjá ykkur.