- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Ólöf Marteinsdóttir lét af störfum sem dagforeldri í Reykjanesbæ 5. júní síðastliðin eftir að hafa starfað samfleytt við daggæslu ungra barna frá árinu 1979 eða í 41 ár.
Víst er að margir íbúar á öllum aldri eiga hlýjar og góðar minningar frá dvölinni hjá Ólu eins og hún er oftast kölluð. Í tilefni þessara tímamóta heimsóttu bæjarstjóri, sviðstjóri fræðslusviðs og leikskólafulltrúi Ólöfu og færðu henni blóm ásamt þökkum fyrir gott og farsælt starf í þágu barna í sveitarfélaginu.
Að vanda var fullt af yngstu íbúum bæjarins hjá Ólu eins og meðfylgjandi myndir sýna.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)