Dagur íslenskrar tungu í dag

Til hamingju með daginn

Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur ár hvert á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar sem er 16. nóvember. Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur 16. nóvember 1996. Haustið 1995 hafði þáverandi menntamálaráðherra komið með tillögu að deginum. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur árlega beitt sér fyrir sérstöku átaki í þágu íslenskrar tungu. Jafnan er dagurinn helgaður íslenskri málrækt. Dagurinn markar auk þess upphaf Stóru upplestrarkeppninnar í grunnskólum Reykjanesbæjar.

Fjölmargar stofnanir bjóða upp á dagskrá helgaða degi íslenskrar tungu. Grunnskólar og leikskólar nota gjarnan daginn sjálfan jafnt sem dagana í kring til að brjóta upp hefðbundið skólastarf og syngja og flytja ljóð eftir íslensk skáld.