- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Opinn dagur um málefni fjölskyldunnar verður haldinn í Íþróttaakademíunni á laugardaginn frá kl. 11:00 - 13:00 en þar verða m.a. veittar viðurkenningar til fjölskylduvænna fyrirtækja.
Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar stendur fyrir deginum en þar flytur ávarp Árni Sigfússon bæjarstjóri, Sr. Erla Guðmundsdóttir flytur erindið "Gefum börnum okkar minningar" og veittar verða viðurkenningar til dagforeldra og fjölskylduvænna fyrirtækja 2010.
Að lokinni dagskrá verður boðið upp á veitingar og eru allir velkomnir.
Boðið verður upp á barnagæslu á staðnum og vinkona skessunnar kemur í heimsókn.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)