- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Haldið verður upp á dag um málefni fjölskyldunnar í Fjölskyldusetrinu, Skólavegi 1 laugardaginn 12. mars með dagskrá frá kl. 11:00 til 13:00. Boðið verður upp á kynningu, erindi og tónlistaratriði og viðurkenningar til fjölskylduvænna fyrirtækja og dagforeldra afhentar. Barnapössun verður á staðnum og boðið upp á veitingar.
Fjölskyldan er hornsteinn samfélagsins og því vert að gefa málefnum hennar gaum. Það hefur verið gert í Reykjanesbæ um árabil, m.a. með þessum degi. Dagskráin verður sem hér segir:
Dagskráin er öllum opin og eru foreldrar hvattir til að taka börnin með, barnagæsla á staðnum.
Til viðbótar við þessa dagskrá má minna á að Fjörheimar/88 húsið er öllum opið kl. 13:00 - 17:00 og Ungmennagarðurinn frá kl. 10:00 - 22:00. Þá getur fjölskyldan gert sér glaðan dag á safnahelgi á Suðurnesjum sem haldin verður 12. og 13. mars. Ókeypis er inn á öll söfn í Reykjanesbæ og margar skemmtilegar sýningar í gangi.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös