- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
DansKompaní úr Reykjanesbæ vakti verðskuldaða athygli á Dance World Cup í ár með framúrskarandi árangri. Keppendur unnu alls níu heimsmeistaratitla, fjögur silfurverðlaun og fimm bronsverðlaun, auk þess sem fjölmörg atriði röðuðu sér meðal tíu efstu. Þá hlaut skólinn einnig fjóra eftirsótta Gala-titla, sem veittir eru þeim atriðum sem þykja bera af sem „best of the best“ á mótinu.
Dance World Cup er eitt stærsta og öflugasta dansmót heims. Um 120.000 dansarar frá yfir 60 löndum taka þátt í forkeppnum um heim allan en 11.500 dansarar vinna sér inn keppnisrétt á úrslitamótinu sem haldið var í Dublin í ár. Árangur DansKompaní er því einstakur og staðfestir það öfluga starf sem unnið er í skólanum.
Að sögn Helgu Ástu, danshöfundar og skólastjóra DansKompaní, einkenndist hópurinn af frábærri stemningu og öflugri liðsheild á mótinu í ár. DansKompaní raðaði inn heimsmeistaratitlum og verðlaunasætum í fjölmörgum flokkum og sýndi enn á ný að skólinn er meðal allra fremstu dansskóla heims.
Markviss vinna skilar árangri
"Æfingaferlið hófst í byrjun desember en þá hófst undirbúningur hópsins fyrir forkeppnina sem haldin var í Borgarleikhúsinu í febrúar. Þar tryggðu öll atriði skólans sér sæti í íslenska landsliðinu fyrir Dance World Cup. Nemendur stóðu sig afar vel í gegnum allt ferlið og sýndu bæði mikla fagmennsku og samheldni.
Foreldrahópurinn átti einnig stóran þátt í velgengninni. Foreldrar sáu meðal annars um að panta búninga, smíða sviðsmuni og styðja við bakið á hópnum á fjölbreyttan hátt." segir Helga Ásta.
Eftirminnileg augnablik
Eitt eftirminnilegasta augnablik mótsins að sögn Helgu Ástu var þegar DansKompaní vann tvo heimsmeistaratitla með aðeins um fimm sekúndna millibili og keppendurnir fögnuðu sigrinum samtímis á tveimur sviðum. Hún segir þó að samheldnin innan hópsins og gleðin sem ríkti alla keppnisdagana standi upp úr sem stærsti sigurinn.
Reykjanesbær óskar DansKompaní innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur. Hér eru sannkallaðar stjörnur á ferð og það verður sannarlega spennandi að fylgjast með framhaldinu.
Danskompaní unnu verðlaun fyrir:
Gala-titlar:
Wonka’s Wonderland - Children Large Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Munchkins - Mini Large Group Song and dance. Danshöfundur: Helga Ásta og Laufey Soffía
Today is the Day - Senior small group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Mr. & Mrs. Smith - Senior duet/trio Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta Heimsmeistarar
Heimsmeistaratitlar:
Wonka’s Wonderland - Children Large Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Munchkins - Mini Large Group Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta og Laufey Soffía
FartParty! - Mini Small Group Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta
Look - Children small group Commercial Danshöfundur: Helga Ásta
Mr. & Mrs. Smith - Senior duet/trio Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta Heimsmeistarar
The Black Pearl - Senior Large Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Today is the Day - Senior Small Group Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Asylum - Junior Small Group Showstopper. Danshöfundur: Inga Sól
Class Clowns - Junior Small Group Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
Silfurverðlaun:
Bruce - Children Small Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía
Sanderson Sisters - Children duet/trio Showstopper. Danshöfundur: Laufey Soffía
Funhouse - Children Small Group Showstopper. Danshöfundur: Laufey Soffía
Captain Jack Sparrow - Senior solo Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Bronsverðlaun:
Revolting Children - Children Large Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía
GAGA - Senior Large Group Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
Music Box - Children solo Showstopper. Danshöfundur: Inga Sól
Requiem - Children solo Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
Book of Mormon wife’s - Senior large Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía.
TOPP 10:
4.sæti Waitress - Children duet/trio Song and Dance. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
4.sæti Wonderland - Junior Large Group Song and Dance. Danshöfundur: Laufey Soffía
5.sæti Joker - Junior Solo Showstopper. Danshöfundur: Helga Ásta
5.sæti MJ - Senior Small group Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
6.sæti Tóti the Toothfairy - Senior Solo Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta
6.sæti The best of: FRIENDS - Junior Large Group Showstopper. Danshöfundur: Inga Sól
7.sæti Journey - Children solo Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta
8.sæti Barbie - Mini solo Street Dance and Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
8.sæti Be our Guest - Children solo Song and Dance. Danshöfundur: Helga Ásta
8.sæti Therapy - Junior duet/trio Song and Dance. Danshöfundur: Hrafnhildur Una
10.sæti Lay it back - Mini duet/trio Street Dance and Commercial. Danshöfundur: Hrafnhildur Una

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)