Dregið um lóðir í Dalshverfi III

Mikill áhugi er á lóðum í Dalshverfi III og hafa um 600 umsóknir borist Umhverfissviði.

Til stóð að draga úr umsóknum föstudaginn 18. febrúar næstkomandi á almennum fundi Umhverfis- og skipulagsráðs. Töluverð úrvinnsla er við þessar umsóknir og ákveðið hefur verið að fresta úthlutun til aukafundar umhverfis- og skipulagsráðs föstudaginn 25. febrúar.

Dregin verða þrjú nöfn úr potti fyrir hverja lóð sem raðast í 1 – 3 sæti. Falli umsækjandi nr. 1 frá umsókninni færist hún sjálfkrafa til umsækjenda númer 2 og svo framvegis. Í fundargerð sem verður gefin út eftir fund umhverfis- og skipulagsráðs þann 25. febrúar munu niðurstöðurnar verða gerðar opinberar.

Rétt er að geta þess að fulltrúi sýslumanns verður við úthlutunina sem verður í fullu samræmi við áður útgefnar úthlutunarreglur.