- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Drífa Hjördís Thorstensen, kennari við Háaleitisskóla, hlaut nýverið VILJA Hvatningarverðlaun kennara 2026 sem afhent voru á Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framlag til nýsköpunar í skólastarfi og vakti dómnefndin sérstaklega athygli á því hvernig nýsköpun hefur verið nýtt sem sameiginlegt tungumál sköpunar í fjölbreyttu skólasamfélagi.
Drífa hóf kennsluferil sinn árið 2000 en leið hennar að kennarastarfinu var ekki bein. Upphaflega stefndi hún á nám í læknisfræði en eftir nám í heimspeki og barnaheimspeki í Bandaríkjunum fékk hún tækifæri til að kenna í Varmárskóla. Þar kviknaði áhugi hennar á kennslunni fyrir alvöru og síðan þá hefur hún starfað við menntun barna og ungmenna af ástríðu og metnaði.
„Það sem dró mig að kennslunni var fyrst og fremst vinnan með börnum og ungmennum. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hugsun þeirra, sköpunarkrafti og þeirri hæfni sem þau búa yfir til að takast á við flókin verkefni ef þau fá tækifæri til þess.“
Verðlaunin voru veitt fyrir þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað í nýsköpunar- og tæknimennt í Háaleitisskóla undanfarin ár. Þar byggja nemendur markvisst upp færni í sköpun, lausnaleit, hönnun og tækni, allt frá fyrstu skrefum í forritun til róbótatækni, Arduino og þrívíddarhönnunar.
„Það sem hefur veitt mér mestan innblástur eru nemendurnir sjálfir. Þeir sýna okkur aftur og aftur að þeir geta meira en við höldum ef þeir fá tækifæri, tíma og traust.“
Að sögn Drífu hefur áhersla á nýsköpun haft jákvæð áhrif á sjálfstraust nemenda og viðhorf þeirra til áskorana. Hún rifjar upp þegar nemandi sem sagðist „hata erfitt“ í upphafi kennslustundar kvaddi hana síðar með orðunum „Ég elska erfitt.“
„Markmiðið er ekki aðeins að kenna tækni eða forritun heldur að hjálpa börnum að öðlast sjálfstraust til að takast á við ný verkefni, treysta eigin getu og sjá áskoranir sem tækifæri til að læra hvernig á að leysa málin frekar en eitthvað sem ber að forðast.“
Drífa segir viðurkenninguna vera bæði persónulega og viðurkenningu á því öfluga starfi sem byggt hefur verið upp í Háaleitisskóla með stuðningi samstarfsfólks og stjórnenda. Hún telur jafnframt að verðlaunin undirstriki mikilvægi nýsköpunar- og tæknimenntar sem lykilþáttar í menntun framtíðarinnar.
Reykjanesbær óskar Drífu Hjördísi Thorstensen hjartanlega til hamingju og þakkar henni fyrir framúrskarandi framlag til skólaþróunar og nýsköpunar í menntun!
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)