Duus Safnahús hlutu veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði

Frá úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði í Hörpu. Mynd: Sigurjón Ragnar
Frá úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði í Hörpu. Mynd: Sigurjón Ragnar

Í gær var 90 milljónum úthlutað úr Barnamenningarsjóði Íslands við hátíðlega athöfn í Hörpu þar sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja D. Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra tilkynntu um úthlutun. Alls fengu 37 verkefni styrk og nemur heildarfjárhæð styrkjanna 90 milljónum króna en alls bárust 113 umsóknir.

Duus Safnahús hlutu við þetta tilefni 6 milljóna króna styrk sem var annar hæsti styrkurinn sem veittur var í þetta sinn. Verkefnið sem hreppti styrkinn ber yfirskriftina Söfn fyrir börn en markmið þess er að öll börn í sveitarfélaginu fái jafna möguleika á að kynnast því sem söfnin hafa upp á að bjóða í listum, sögu og menningu. Styrkurinn hefur mikið gildi fyrir starfsemi Duus Safnahúsa sem mun gera kleift að börnin fá notið faglegrar leiðsagnar sérstaks fræðslufulltrúa, sem að auki hefur það verkefni að sækja í hús hópa í viðkvæmri stöðu, íbúa af erlendum uppruna og fólk í starfsendurhæfingu til að auka líkur á að þau sæki þangað sjálf með börn sín.

Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi Reykjanesbæjar, sem veitti styrknum viðtöku fyrir hönd Duus Safnahúsa, segir að umsóknin hafi tekið mið af stefnu Reykjanesbæjar þar sem ein af sex stefnuáherslum er „börnin mikilvægust,“ sem og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um aukinn jöfnuð, menntun fyrir alla og heilsu og vellíðan. Það hafi því verið einkar ánægjulegt að styrkurinn hafi hlotist og færir hún sérstakar þakkir til Barnamenningarsjóðs og úthlutunarnefndar fyrir hönd Reykjanesbæjar.

Var þetta í þriðja sinn sem úthlutað var úr sjóðnum sem var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldis Íslands. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.