Tónlistarveisla í Hljómahöll - Árstíðir Vivaldis

Árstíðirnar fjórar verða fluttar í Bergi í Hljómahöll sunnudaginn 20. október.
Árstíðirnar fjórar verða fluttar í Bergi í Hljómahöll sunnudaginn 20. október.

Það verður mikil tónlistarveisla í Bergi Hljómahöll sunnudaginn 20. október þegar verkið Árstíðirnar eftir A. Vivaldi verður flutt í heild sinni. Verkið er eitt af þeim þekktustu í klassískri tónlistarsögu. Árstíðirnar hafa náð fáheyrðum vinsældum miðað við það sem gerist og gengur í klassíska tónlistarheiminum og má nánast fullyrða að hvert mannsbarn þekki úr þeim stef.   

Flytjendur eru Maksymilian Haraldur Frach (einleiksfiðla), Magdalena Nawojska, Jagoda Tkaczow (1. fiðla), Nikodem Frach, Joanna Bartkiewicz (2. fiðla), Janusz Frach (víóla), Klaudia Borowiec (selló), Mikołaj Ólafur Frach, Iwona Frach (píanó).

Til tónleikanna bjóða sendiherra Póllands á Íslandi, Gerard Pokruszyński og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Tónleikarnir, sem taka um klukkustund í flutningi, fara fram í Bergi í Hljómahöll, sunnudaginn 20. október kl. 16:00. Bæjarbúar eru hvattir til að bregða undir sig betri fætinum og njóta fallegrar tónlistar í hinum prýðisgóða tónleikasal, Bergi í Hljómahöll. Allir eru hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir.