Eldgosið á Reykjanesi

Gasmengun
Eldgosið gefur frá sér eiturgufur og gasmengun, sem getur verið hættulegt. Mjög mikilvægt er að fólk almennt fylgist vel með öllum upplýsingum varðandi loftgæði.

Ef sú staða kemur upp að varað er við slæmum loftgæðum vegna þessa, eru einstaklingar hvattir til að dvelja innandyra og gæta þess að gluggar séu lokaðir. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir þá einstaklinga sem eru viðkvæmir fyrir loftmengun.

Á vefnum loftgaedi.is má finna upplýsingar varðandi loftgæði og viðbrögð við loftmengun frá eldgosum. Íbúar eru hvattir til að fylgjast með fréttum og upplýsingum um þessi mál og fylgja leiðbeiningum sem því tengjast.