- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Lögreglan á Suðurnesjum og Reykjanesbær hafa að undanförnu unnið að því að endurnýja samkomulag við veitingamenn í Reykjanesbæ. Samkomulagið er að nokkru leyti byggt upp á samkomulagi sem gert var árið 2007, en hefur þó verið uppfært með reynslu fyrra samkomulagsins að leiðarljósi.
Í nýja samkomulaginu styttist opnunartíminn m.a. á fimmtudögum umtalsvert, en þar er gert ráð fyrir staðirnir loki eigi síðar en 01.00 og að allri áfengissölu sé lokið klukkan 01.00. Gestir skulu hafa yfirgefið veitingastaðinn eigi síðar en einni klukkustund eftir lokun hans.
Veitingamönnum er heimilt að um helgar og almenna frídaga sé í síðasta lagi opið til kl. 04:30 að nóttu, þannig að ekki verði hleypt inn á staðinn eftir kl. 04:30 og að allir gestir hafi yfirgefið veitingastaðinn kl. 05:00. Þá skal áfengissölu lokið kl. 04:30.
Eftirlit með ungmennum undir aldri verður eflt í samræmi við 5. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 85/2007 og að ungmenni undir 20 ára aldri fái ekki selt, veitt eða afhent áfengi sbr. 18. gr. áfengislaga nr. 75/1998.
Þó nokkrar ábendingar hafa borist til lögreglu og bæjaryfirvalda á undanförnum árum, þess efnis að ungmenni undir aldri hafi komist inn á veitingastaði. Rétt er að vekja sérstaka athygli á að skilríkjafals er alvarlegt lögbrot og er meðhöndlað sem slíkt.
Útideild Reykjanesbæjar verður á vaktinni ásamt lögreglu flestar helgar og ábendingar til Útideildar eru vel þegnar á utideild@reykjanesbaer.is
Reykjanesbær hefur lagt áherslu á það við veitingamenn, að snyrtilegt umhverfi utan veitingastaðanna og almenn umhirða í nágrenni þeirra, sé eitt lykilatriðið í samkomulaginu og muni hafa áhrif á framkvæmd þess.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös