Landsátak í sundi

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2022.

Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Átakið var formlega sett á laggirnar á sama tíma í fyrra og var þátttakan þá gríðarlega góð, en alls tóku landsmenn sig til og syntu heila 11,6 hringi í kringum landið. Það væri gaman að sjá sem flestar sundlaugar taka þátt.

Sund er fyrir alla

Syndum - Landsátak í sundi, er framhald af Íþróttaviku Evrópu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Síðustu ár hafa sýnt okkur með óyggjandi hætti að góð heilsa er ómetanleg. Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur. Íslendingar hafa verið duglegir að stunda sund enda búum við vel að góðum sundlaugum um allt land. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

Syndum saman í kringum Ísland.

Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu www.syndum.is Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.

Þeir sem skrá sig og taka þátt eiga möguleika á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Lindu Laufdal, starfsmann ÍSÍ í síma: 514 4016 eða á netfangið syndum@isi.is

 

Sund er frábær hreyfing – við hvetjum alla til að taka þátt!


Sundmiðstöðin - Vatnaveröld

Í Sundmiðstöðinni er 25 metra útilaug og 4 setlaugar og eimbað. Að auki er ein glæsilegasta 50 metra innilaug landsins.

Mánudagur - Föstudagur: 06:30 - 21:30
Laugardagur og Sunnudagur: 09:00-18:00

Sundlaug Njarðvíkur

Vetrartími (20. ágúst - 6. júní): Morgunopnun kl. 6:30 til 08:00 virka daga. Opið á kvöldin þriðjudaga og föstudaga frá kl. 16:00 til 21:00 og á miðvikudagskvöldum frá klukkan 17:00-21:00 . Opið er á laugardögum frá kl. 13:00 til 17:00. Lokað á sunnudögum og stórhátíðisdögum.

Massi er opinn mánudag til föstudags frá kl. 6.30 til 21.00 og laugardag frá kl. 9:00 - 17:00. Lokað sunnudaga og á stórhátíðisdögum.