- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Fræsing á Kirkjuvegi
Á miðvikudaginn 22. apríl eru fyrirhugaðar fræsingar á götum í bænum, ef veður leyfir.
Lokað verður fyrir almenna umferð á meðan framkvæmdum stendur, en strætisvagnar og nauðsynlegur akstur fá að komast um svæðið. Ökumenn eru beðnir um að aka með sérstakri aðgát.
Einnig er fyrirhugað að fræsa Sólvallagötu og Vesturbraut í framhaldi. Ekki er gert ráð fyrir mikilli truflun á umferð þar, en hraði verður lækkaður á vinnusvæðum og viðeigandi merkingar settar upp.
Malbikunarframkvæmdir á Vesturbraut og Sólvallagötu, 24. apríl
Föstudaginn 24. apríl eru fyrirhugaðar malbikunarframkvæmdir, ef veður leyfir.
Bent er á að göngustígar liggja að leikskóla á svæðinu og eru foreldrar hvattir til að nýta þá við að sækja og skutla börnum á meðan lokanir standa yfir.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða merkingar á meðan framkvæmdum stendur.
Við þökkum fyrir skilning og samstarf á meðan unnið er að framkvæmdunum.
Umhverfisvaktin verður uppfærð eins oft og unnt er yfir vikuna, en henni er deilt vikulega eða eins og nauðsynlegt er, hér á síðunni. Einnig er hægt að fylgjast með helstu framkvæmdum á vegum bæjarins á kortasjá Reykjanesbæjar.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)