Bátafloti Gríms

Grímur Karlsson
Grímur Karlsson
Bátafloti Gríms Karlssonar
Í eigu Byggðasafnsins eru nærri 140 bátslíkön sem flest voru smíðuð af Grími Karlssyni skipstjóra. Þessa vikurnar stendur yfir vinna við uppsetningu á nýrri sýningu á bátslíkönunum og var tækifærið notað til að mynda hvert og eitt módel og byggja upp vef um bátaflota Gríms Karlssonar. Vefurinn hefur nú verið opnaður á vefsvæði Byggðasafnsins og gefst áhugasömum kostur á að skoða þau bátslíkön sem Grímur smíðaði og eru í eigu Byggðasafnsins. Hverju líkani fylgir saga bátsins með vönduðum myndum af hverju módeli.
 
Leitum eftir myndum af bátslíkönum Gríms
Grímur smíðaði þó talsvert fleiri módel en hér gefur að líta, bátslíkön sem eru í eigu annarra safna, fyrirtækja og einstaklinga. Byggðasafnið óskar því eftir upplýsingum og myndum af bátslíkönum sem eru í eigu annarra með það að markmiði að í framtíðinni verði hægt að sjá hér heildaryfirlit yfir allan bátaflota Gríms Karlssonar.