Enn fjölgar í Reykjanesbæ

Leikskólabörn í Reykjanesbæ.
Leikskólabörn í Reykjanesbæ.

Íbúar í Reykjanesbæ voru 14.593 í lok janúar á þessu ári, samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár. Íbúafjölgun hefur verið 2,6% frá janúar 2013 til janúar 2014. Stöðug fjölgun hefur verið á milli mánaða allt síðasta ár. 7.900 íbúar búa nú í Keflavik (póstnúmer 230) en yfir 5.000 íbúar í Njarðvík og Innri Njarðvík (póstnúmer 260) Þá búa tæplega 1600 íbúar að Ásbrú (póstnúmer 235) og 90 íbúar í Höfnum (233).

Mesta fjölgunin á milli janúar 2013 og 2014 var í  hinum nýju Njarðvíkurhverfum; um 140 manns, þá í Keflavik; um 120 manns og loks Ásbrú; um 100 manns.

„Þetta er ánægjuleg þróun og  í takt við nýjustu fréttir um að mikill fjöldi landsmanna hafi áhuga á að flytja til okkar. Hér eru innviðir sterkir, gott umhverfi, gott skólastarf og íþróttastarf fyrir börn og vonandi að vel launuð störf haldi áfram að raða sér hingað inn“,  segir Árni Sigfússon bæjarstjóri.