Enn nóg um að vera á síðasta degi Ljósanætur

Ljósanótt 2026 lýkur í dag eftir viðburðaríka hátíðardaga í Reykjanesbæ. Mikill mannfjöldi lagði leið sína á hátíðina í gær. Árgangagangan setti svip sinn á bæinn og hátíðarsvæðið iðaði af lífi áður en stórtónleikar og flugeldasýning settu punktinn yfir i-ið á laugardagskvöldinu í blíðskaparveðri sem skapaði ógleymanlega stemningu yfir miðbænum.

Þótt stærsti dagur hátíðarinnar sé að baki er Ljósanótt ekki alveg búin. Bjart og fallegt veður tekur á móti gestum á síðasta deginum og fjölbreytt dagskrá verður víða um Reykjanesbæ.

Meðal dagskrárliða í dag er söguganga um gamla bæinn í Keflavík kl. 11 og síðar um daginn tekur tónlistin við á ýmsum stöðum. Tónleikar verða í Kirkjuvogskirkju í Höfnum og kvölddagskrá verður að venju í Keflavíkurkirkju, auk þess sem minningartónleikarnir Himinn og jörð um Gunnar Þórðarson fara fram í Hljómahöll. Það er einkar viðeigandi að á Ljósanótt gefist tækifæri til að minnast Gunnars og þess mikla tónlistararfs sem hann skilur eftir sig.

Sunnudagurinn er jafnframt góður dagur til að rölta um bæinn, heimsækja sýningar og viðburði og njóta þess síðasta sem Ljósanótt 2026 hefur upp á að bjóða áður en hátíðinni lýkur.

Alla dagskrá dagsins má finna á ljosanott.is.

Ljósanótt 2026 lýkur í dag, sunnudaginn 6. september.