Er líf eftir fjárhagserfiðleika? Áhugaverður fyrirlestur

Er líf eftir fjárhagserfiðleika?
Er líf eftir fjárhagserfiðleika?

Er líf eftir fjárhagserfiðleika? Hver er staða þín í fjárhagsþrengingum? er yfirskrift fyrirlestrar Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar sem haldinn er i samvinnu við Velgengni.is og Virkjun mannauðs á Suðurnesjum.

Fyrirlesturinn hentar öllum þeim sem vilja finna lausnir í greiðsluerfiðleikum.
Fyrirlesari er Sigurður Erlingsson,  www.velgengni.is

Hvar: Í Virkjun, Flugvallarbraut 740, 235 Ásbrú, Reykjanesbæ
Hvenær: Miðvikudaginn 27. október 2010
Fyrir hverja: Opinn öllum
Kl. hvað : 18:00 - 21:00

Í fyrrihluta fyrirlestrarins er farið í gegnum réttindi og skyldur skuldara á mannamáli.
Að þekkja og skilja þau úrræði sem standa til boða hjálpa þér að velja réttu leiðina til að komast úr fjárhagserfiðleikum.

Hvað þýðir og hvaða afleiðingar hafa:

- Fjárnám - Fyrning
- Greiðsluþrot - Gjaldþrot
- Greiðsluaðlögun - Vanskilaskráning
- Stefna - Greiðsluáskorun
- Sértæk skuldaaðlögun - Nauðasamningar
- Nauðungarsala o.fl.


Seinni hluta fyrirlestrarins skoðum við hverjar eru helstu hindranir fyrir því að við leggjum af stað og hvaða leiðir eru færar til að öðlast nýtt líf sem fyrst. Hvernig byggjum við upp brotna sjálfsmynd eftir fjárhagslegt niðurbrot. Hver er lykilinn að því að öðlast nýtt og spennandi líf, strax í dag.

Fjölskyldu-og félagsþjónusta Reykjanesbæjar
Velgengni.is
Virkjun mannauðs á Suðurnesjum