Erlingskvöld haldið í Bíósal Duushúsa

Frá Erlingskvöldi
Frá Erlingskvöldi

Erlingskvöld verður haldið í Bíósal Duushúsa fimmtudagskvöldið 25. mars kl. 20:00.

Pétur Gunnarsson rithöfundur kynnir nýlegar bækur sínar um rithöfundinn Þórberg Þórðarson.
Hljómsveitin Talenturnar flytur lög við ljóð Þórbergs og annarra íslenskra skálda.
Kynnt verður vettvangsverkefni leikskólans Tjarnarsel, þar sem útilistaverk Erlings Jónssonar voru skoðuð og rædd.
Dagskránni lýkur með heimsókn í Listasafn Erlings Jónssonar í Gróf.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Erlingskvöld er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.