Ertu með hugmynd fyrir Ljósanótt 2018?

Frá setningu Ljósanætur við Myllubakkaskóla árið 2016.
Frá setningu Ljósanætur við Myllubakkaskóla árið 2016.

Undirbúningur fyrir Ljósanæturhátíð 2018 er nú hafin. Hátíðin fer fram dagana 29. ágúst til 2. september. Sem fyrr eru bæjarbúar hvattir til að taka þátt í hátíðinni með því að skipuleggja og bjóða upp á viðburði fyrir bæjarbúa og gesti Ljósanætur. 

Ef þú lumar á góðri hugmynd að viðburði eða dagskrárlið á Ljósanótt, endilega sendu línu á ljosanott@reykjanesbaer.is