Faglegt, kröftugt og fjölbreytt menntasamfélag

Endurmenntunarráðstefna skrifstofu menntasviðs 2026

Endurmenntunarráðstefna skrifstofu menntasviðs fór fram í íþróttahúsinu við Stapaskóla þann 13. ágúst 2026. Ráðstefnan er árlegur viðburður þar sem starfsfólk grunnskóla sveitarfélagsins kemur saman til að efla faglegt starf, dýpka þekkingu og styrkja tengsl í skólasamfélaginu. Dagskráin í ár bar yfirskriftina Faglegt, kröftugt og fjölbreytt menntasamfélag.

Ráðstefnan er liður í því að styðja við framkvæmd menntastefnu Reykjanesbæjar – Með opnum hug og gleði í hjarta og skapa vettvang fyrir samtal og samræmingu í skólastarfi sveitarfélagsins.

Ráðstefnan hófst með kaffispjalli og Helgi Arnarson, sviðsstjóri menntasviðs, setti að því loknu ráðstefnuna. Hann velti upp tilgangi menntunar og þeirri spurningu hvað við teljum raunverulega mikilvægt að börn fái út úr skólagöngu sinni. Hann ræddi mikilvægi sköpunar, fjölbreyttra hæfileika og þess að börn fái tækifæri til að uppgötva hvað í þeim býr.

Helgi ræddi jafnframt aukna áherslu á mælingar, samanburð og stöðlun í skólastarfi. Hann lagði áherslu á mikilvægi grunnfærni, góðra matstækja og þess að gera kröfur, en varaði við því að það sem auðvelt er að mæla fengi að ráða því hvað við teljum mikilvægt. Menntun snerist um meira en niðurstöður prófa og skólastarf þyrfti að taka mið af ólíkum styrkleikum, hæfileikum og þörfum barna.

Að lokum hvatti Helgi skólafólk til að treysta fagmennsku sinni, vera gagnrýnið gagnvart sveiflum í umræðu um skólamál og gefa rými fyrir forvitni, sköpun, fjölbreytileika og gleði í skólastarfi, í anda menntastefnu Reykjanesbæjar, Með opnum hug og gleði í hjarta.

Erindi ráðstefnunnar voru:

Inngildandi og heilsueflandi námsumhverfi - Skóli fyrir öll

Fyrsta erindi dagsins flutti Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir sérfræðingur í heilbrigðisfræðslu og aðgengilegri hönnun náms. Í fyrirlestrinum einblíndi hún á mikilvægi þess að efla skólatengsl hjá nemendum með taugafjölbreytileika (skynsegin) með því að auka aðgengi að jafnri þátttöku í námi m.a. með notkun hjálpartækja.

Stuðningur við skólasókn: Frá fjarvistum að þátttöku

Í erindi sínu fjallaði Einar Trausti Einarsson yfirsálfræðingur á skrifstofu menntasviðs um nýtt verklag um stuðning við skólasókn og velti þar upp spurningunni; Hvenær vitum við að barn þarf stuðning við skólasókn? Skólasókn er ekki aðeins spurning um mætingu heldur mikilvæg vísbending um líðan, skólatengsl og stuðningsþarfir barna og ungmenna. Í erindinu fór Einar Trausti yfir það hvernig skilningur á skólasókn hefur þróast á undanförnum árum og hvernig sú þróun kallar á breytta nálgun í stuðningi við skólasókn. Erindið var byggt á nýjum rannsóknum á sviðinu með áherslu á hvernig við getum hagnýtt þá þekkingu til að styðja við skólasókn nemenda okkar.

Örugg tjáning – betri samskipti

Sirrý Arnardóttir stjórnendaþjálfari, háskólakennari og fjölmiðlakona gaf ráðstefnugestum fjölmörg ráð í átt að betri samskiptum. Starfsfólk skóla þarf oft að koma fram í starfi og ýmist að lána ró sína eða drifkraft og orku. Við krefjandi aðstæður er gott að hafa verkfærakistu til að sækja í og endurhlaða batteríin. Fyrirlesturinn var hagnýtur um mikilvægi framsækni og öruggrar tjáningar til að stuðla að góðum samskiptum og koma fram af öryggi.