- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Í dag er fánadagur heimsmarkmiðanna. Fánadagurinn hefur stækkað ár frá ári og eru þátttakendurnir hundruð fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka, skóla og sveitarfélaga um allan heim. Reykjanesbær flaggar í dag fána heimsmarkmiðanna til þess að vekja athygli á málefninu.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun standa fyrir því að skapa betri heim meðal annars með því að ná tökum á loftslagsbreytingum, auka jöfnuð og útrýma sárafátækt fyrir árið 2030. Tilgangur fánadagsins er að minna á mikilvægi þess að við tökum öll þátt í því að vinna að þessum markmiðum.
Reykjanesbær tengdi heimsmarkmiðin við stefnu sína árið 2019 og hefur síðan þá unnið markvisst að innleiðingu þeirra. Í september í fyrra var stórt skref stigið í þessari vegferð þegar skólasamfélagið á Suðurnesjum tók höndum saman um samstarf við heimsmarkmiðin með innleiðingu UNESCO skóla hér á svæðinu.
Við hvetjum íbúa til þess að kynna sér heimsmarkmiðin á vefsíðu þeirra hér og taka þátt í vegferðinni að sjálfbæru samfélagi með okkur. Einnig hvetjum við alla til þess að vekja athygli á málefninu á samfélagsmiðlum og nota til þess myllumerkið #TogetherforTheSDGs
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)