- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Framtíðarþing um farsæl efri ár í Reykjanesbæ verður haldið á Nesvöllum fimmtudaginn 6. apríl kl. 15:00 - 18:00. Markmið þingsins er að skapa umræðu meðal áhugasamra um öldrunarmál, draga fram væntingar, viðhorf og hugmyndir um hvernig stuðla megi að farsælum efri árum íbúa í Reykjanesbæ. Unnið verður út frá þjóðfundarfyrirkomulagi.
Óskað er eftir þátttakendum úr eftirfarandi hópum:
• 75 ára og eldri
• 55-75 ára
• 55 ára og yngri
• Starfsfólk sem tengist
öldrunarmálum
Boðið er upp á veitingar.
Niðurstöður þingsins verða afhentar Reykjanesbæ sem innlegg í stefnumótunarvinnu í málaflokknum.
Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangið nesvellir@reykjanesbaer.is eða í síma 420 3400. Taka þarf fram nafn, kennitölu, netfang og símanúmer.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)