- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Reykjanesbæ. Fasteignagjöldum er dreift á 10 gjalddaga, fyrsta dag hvers mánaðar frá 1. febrúar til og með 1. nóvember. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Heildarálagning undir 25.000 fer á fyrsta gjalddaga ársins. Gjaldskrá fasteignagjalda
Elli- og/eða örorkulífeyrisþegar sem eiga rétt á tekjutengdum afslætti þurfa ekki að sækja um hann sérstaklega. Slíkar upplýsingar eru sóttar rafrænt til ríkisskattstjóra tvisvar á árinu, í upphafsálagningu miðað við tekjur ársins 2024 og uppfærðar í júní miðað við tekjur ársins 2025. Sjá viðmiðunartekjur og reglur
Álagningarseðlar fasteignagjalda 2026 birtast á island.is
Greiðsluseðlar fasteignagjalda birtast eingöngu sem kröfur í heimabanka en hægt er að óska eftir að fá greiðsluseðla í tölvupósti. Bendum einnig á hagræði þess að hafa fasteignagjöldin í boðgreiðslum á kreditkorti.
Rafrænir reikningar gegnum skeytamiðlun eru sendir á fyrirtæki sem hafa skráð sig þannig hjá Reykjanesbæ.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)