Fetað til framtíðar í fjörunni: Skemmtilegt stígvélaverkefni leikskólabarna á Holti

Leikskólabörn feta til framtíðar
Leikskólabörn feta til framtíðar

Fetað til framtíðar í fjörunni er skemmtilegt stígvélaverkefni leikskólans Holts sem hægt verður að skoða á Ljósanótt.
Þar verða sýnd listaverk unnin af nemendum leikskólans þar sem stígvél eru í aðalhlutverki.

Á fimmtudeginum verður hægt að finna barnastígvél meðfram fjörugarðinum fyrir neðan tjarnirnar í Innri Njarðvík sem mynda skemmtileg listaverk þar sem börnin tjá hugmyndir sínar um fjöruna í máli og myndum.

sjá dagskrá ljósanætur á ljosanott.is