Fimmtánþúsundasti íbúinn fæddur

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri ásamt fimmtánþúsundasta íbúanum og foreldrum hans
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri ásamt fimmtánþúsundasta íbúanum og foreldrum hans

Íbúatala Reykjanesbæjar fór upp í 15.000 á föstudaginn þegar sprækur strákur kom í heiminn á ljósmæðravakt Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Af þessu skemmtilega tilefni mætti Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri á fæðingardeildina og færði fjölskyldunni blómvönd fyrir hönd bæjarins.

Drengurinn vóg 3.995 gr. og var 52 cm langur við fæðingu. Hann er annað barn foreldra sinna, þeirra Katarzynu Helenu Szczepanska og Maciej Palamar en fyrir eiga þau dótturina Susan Rosa fædda árið 2013. Mæðginunum heilsast vel. Ljósmóðirin sem tók á móti drengnum hér á ljósmæðravakt HSS heitir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir og sést hér með fjölskyldunni á góði stund.

Hér  má sjá fimmtánþúsundasta íbúa Reykjanesbæjar, foreldra hans og ljósmóður

Mikil fjölgun hefur verið í Reykjanesbæ síðustu ár, sem og á öllu þjónustusvæði HSS. Þar hefur íbúum fjölgað um tæp 30% frá árinu 2005, úr rúmlega 17.000 manns í rúmlega 22.000.

(Frétt og mynd af vef HSS)