- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Fjárhagslegur ávinningur örútboðs á endurskoðun fyrir Reykjanesbæ, Reykjaneshöfn og Fasteignir Reykjanesbæjar nemur tæplega 20 milljónum króna, að sögn Jóns Inga Benediktssonar innkaupastjóra Reykjanesbæjar.
Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti í morgun að taka tilboði Grant Thornton endurskoðunar ehf. í endurskoðun fyrir Reykjanesbæ, Reykjaneshöfn og Fasteignir Reykjanesbæjar á grundvelli niðurstöðu örútboðs. Ríkiskaup framkvæmdi útboðið fyrir Reykjanesbæ sem gerði kröfu um að sá endurskoðandi sem stjórnaði verkinu myndi falla í A- flokk samkvæmt Rammasamningi ríkisins og krafist var reynslu af sambærilegum verkefnum. Grant Thornton var með lægsta tilboðið af þeim fyrirtækjum sem sendu inn tilboð og stóðust kröfulýsingu. Stefnt er að undirskrift samnings að loknum 10 daga biðtíma. Alls sex fyrirtæki buðu í verkið.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös