Fjármál Reykjanesbæjar

Horft yfir Reykjanesbæ.
Horft yfir Reykjanesbæ.

Vísað er til tilkynningar Reykjanesbæjar frá 4. febrúar 2016 þar sem fram kom að Reykjanesbær hafi veitt stærsta kröfuhafa Reykjanesbæjar, kröfuhöfum Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf., Glitni HoldCo ehf. f.h. Ríkissjóðs Íslands, Landsbankanum hf. og Íslandsbanka hf. frest til föstudagsins 5. febrúar til þess að bregðast við tillögu Reykjanesbæjar um afmörkun á skuldavanda sveitarfélagsins. Viðræður við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. hafa staðið yfir frá því í marsmánuði 2015 þegar tilkynnt var að Reykjanesbær hefði hafið viðræður um fjárhagslega endurskipulagningu bæjarins.

Viðræður við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. hafa skilað árangri og hafa aðilar sammælst um umfang skuldavanda sveitarfélagsins. Í kjölfarið mun vinna við fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnana þess halda áfram. Rætt verður við aðra kröfuhafa bæjarfélagsins og stofnana þess á grundvelli viðræðna við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. Kapp verður lagt á að ljúka þeim eins fljótt og auðið er.

„Viðræðum síðustu daga hefur miðað í rétta átt og höfum við ákveðið að halda þeim áfram. Því verður ekki leitað eftir því, að svo komnu máli, að Reykjanesbæ verði skipuð fjárhagsstjórn“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.