- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
SÁÁ, samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann boðar til opins borgarafundar um áfengis- og vímuefnavandann í Bíósal Duus safnahúsa, fimmtudaginn 15. október. Fundurinn hefst kl. 20.00 og er öllum opinn. Þetta er sjötti opni borgarafundurinn sem SÁÁ hefur boðað til víða um land á þessu ári og nú er komið að Reykjanesbæ.
Á fundinum verða flutt erindi í tónum og tali. Fram koma: Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, Haukur Hilmarsson, fjármálaráðgjafi, Einar Már Guðmundsson, rithöfundur og Eva Þyrí Hilmarsdóttir, píanóleikari. Fundarstjóri er Ásgerður Th. Björnsdóttir, framkvæmdastjóri SÁÁ,
Að loknum erindum verður gestum boðið að tjá sig og spyrja spurninga. Boðið verður upp á kaffi og með því. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir, enginn aðgangseyrir.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös