Fjölbreytt dagskrá á Erlingskvöldi

Erlingskvöld verður í Bókasafni Reykjanesbæjar fimmtudaginn 31. mars. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá, kynningu, upplestur og tónlist. Húsið opnar klukkan 19.45 með ljúfum tónum og smá góðgæti fyrir gesti. Dagskrá hefst klukkan 20.00 og er hún styrkt af Menningarráði Suðurnesja.

Hugarfrelsi

Þær Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir frá Hugarfrelsi verða fyrstar til leiks en þær kynna einfaldar og gagnlegar aðferðir sem hjálpa börnum, unglingum og fullorðnum að takast á við kvíða, auka einbeitingu, ýta undir jákvæða hugsun og efla sjálfsmynd sína.

Erindi þeirra er byggt á bókinni Hugarfrelsi – Aðferðir til að efla börn og unglinga en þær hafa innleitt aðferðir sínar í fjölda leik- og grunnskóla landsins og einnig haldið fjölda námskeiða fyrir börn, unglinga og fullorðna undanfarin ár.

Vertu úlfur

Héðinn Unnsteinsson er rithöfundur og eftir hann kom út bókin Vertu úlfur árið 2015. Héðinn starfar einnig sem stefnumótunarsérfræðingur í forsætisráðuneytinu. Hann er með meistaragráðu í alþjóðlegri stefnumótun og stefnugreiningu frá Háskólanum í Bath á Englandi. Héðinn starfaði áður sem sérfræðingur hjá heilbrigðisráðuneytinu og alþjóðarheilbrigðismálastofnuninni (WHO). Héðinn hefur komið að geðheilbrigðismálum í tæplega 25 ár fyrst hér á landi og erlendis. Hann hefur allt í senn verið málsvari notenda og aðstandenda og unnið með grasrótarfélögum á sama tíma og hann hefur unnið með alþjóðasamtökum og ríkisstjórnum einstaka landa og stofnunum að umbótum í geðheilbrigðismálum. Héðinn átti frumkvæðið að Geðræktarverkefninu og hugmyndina að geðorðunum 10 árið 2000. Geðræktarverkefnið fékk alþjóðleg viðurkenningu árið 2004 þegar Alþjóðaheilbrigðisstofnunin(WHO) og Alþjóðasamband geðheilbrigðisfélaga verðlaunuðu sem eitt af 5 bestu geðræktarverkefnum heims.

Héðinn hefur verið alþjóðlegur ráðgjafi í geðheilbrigðismálum samhliða starfi sínu á undanförnum árum og haldið hátt í 700 fyrirlestra þar sem hann hefur nýtt reynslu sína, þekkingu og menntun.

Söngvaskáld

Söngvaskáld á Suðurnesjum – Tónleikaröðin Söngvaskáld á Suðurnesjum miðar að því að kynna ríkan tónlistararf á Suðurnesjum.
Söngvaskáldin 2016 eru Vilhjálmur Vilhjálmsson frá Merkinesi í Höfnum, Sigvaldi Kaldalóns sem starfaði um árabil sem héraðslæknir í Grindavík og Keflvíkingurinn Jóhann Helgason.

Flutt er tónlist frá ferli söngvaskáldanna og gefin innsýn í mótunarárin á Suðurnesjum og áhrif á íslenska tónlistarsögu.

Kynnir er Dagný Gísladóttir en flutningur laganna er í höndum Arnórs B. Vilbergssonar og Elmars Þórs Haukssonar.