- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Hátíðar- og skemmtidagskrá í skrúðgarðinum á 17. júní hefst að venju kl. 14:00 með fánahyllingu. Fánahyllir í ár er Axel Jónsson matreiðslumaður. Að því loknu verður hefðbundin dagskrá með ávarpi fjallkonu, ræðum og kórsöng. Þá tekur við skemmtidagskrá á sviði og í garðinum sjálfum. Kvölddagskrá verður í Ungmennagarðinum í umsjón Leikfélags Keflavíkur.
Hlaupið verður inn í 17. júní með víðavangshlaupi knattspyrnudeildar UMFN, sem í ár er 40 ára afmælishlaup . Boðið verður upp á 5 km hlaup og krakkahlaup. Ræst verður frá íþróttavallarhúsi UMFN kl. 11:00 þar sem skráning fer jafnframt fram. Hátíðarguðsþjónusta verður í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 12:30 og að henni lokinni ganga Heiðarbúar frá skátaheimili félagsins að hátíðarsvæði í skrúðgarði undir blæstri frá lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Dagskrá þar hefst kl. 14:00 og stendur fram eftir degi.
Kaffisala Kvenfélags Keflavíkur og körfuknattleiksdeilda félaganna í Reykjanesbæ er á sínum stað og opið er í Rokksafni Íslands, Hljómahöll og Duus Safnahúsum kl. 11:00 - 18:00. Ókeypis aðgangur er í Duus Safnahús í tilefni þjóðhátíðardags.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)