- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Það er margt ánægjulegt starf unnið hjá félagsþjónustunni í Reykjanesbæ sem vert er að kynna fyrir íbúum. Stuðningur við einstaklinga og fjölskyldur á mismunandi tímum í lífinu og við mismunandi aðstæður, til að allir geta fundið og ræktað hæfileika sína, er mikilvægur og því þurfa úrræðin að vera fjölbreytt.
Í þjónustumiðstöðinni á Nesvöllum er fjölbreytt dagskrá alla virka daga. Í Björgina kemur daglega hópur fólks saman og tekur þátt í margvíslegu starfi sem þar fer fram. Hæfingarstöðin er frábær samverustaður og oft mikið fjör. Í Baklandinu er börnum hjálpað að læra og leika. Á öllum þessum stöðum starfar frábært starfsfólk sem tekur vel á móti öllum sem þangað koma. Í samstarfi fjölmargra aðila er svo gamli Barnaskólinn að fá nýtt hlutverk sem Fjölskyldusetur, fræðasetur þar sem fjölskyldur í Reykjanesbæ geta sótt sér fræðslu og þekkingu eftir þörfum.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)