- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Vikuna 29. september til 5. október er árleg lýðheilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ. Fjöldi heilsutengdra viðburða verður í boði fyrir bæjarbúa á öllum aldri. Markmiðið með lýðheilsu- og forvarnarvikunni er að efla vitund og ýta undir heilbrigða lífshætti sem stuðla að bættri líðan og öflugri lýðheilsu bæjarbúa.
Fjölbreytt dagskrá verður í gangi alla vikuna, og ýmis tilboð í boði hjá fyrirtækjum og stofnunum Reykjanesbæjar sem taka virkan þátt. Meðal þeirra viðburða eru núvitundarganga í Njarðvíkurskógum, heilsufarsskoðun á Bókasafni Reykjanesbæjar, ókeypis sund í Vatnaveröld 4. október og fríir jógatímar í OM setrinu. Íþróttafélögin munu einnig bjóða upp á ókeypis æfingar og vinaviku, og líkamsræktarstöðvar verða með ýmis tilboð í gangi. Þá munu Nesvellir standa fyrir viðburðum fyrir eldri borgara.
Hægt er að kynna sér dagskrána í heild sinni á VisitReykjanesbær
Við getum því öll fundið okkur hreyfingu við hæfi og nýtt okkur þann fjölda heilsueflandi viðburða sem verða í boði til að bæta heilsu okkar. Allir bæjarbúar eru hvattir til þess að taka þátt í lýðheilsu- og forvarnarvikunni.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)