Fjölmenningarhátíð í Reykjanesbæ

Menningarheimar mætast – Fjölmenningarhátíð í Reykjanesbæ

Allir menningarheimar eiga það sameiginlegt að skilja mikilvægi þess að koma saman, til að létta lundina í leik, njóta tónlistar og matar. Heimurinn tilheyrir okkur öllum og við eigum öll að vera velkomin hvar sem er. Reykjanesbær er gróskumikið fjölmenningarsamfélag og er það vel til fundið að halda fjölmenningarhátíð fyrir alla íbúa til að koma saman. Það er gott orðspor fyrir samfélag að allir séu jafnir og fái tækifæri til að blómstra.

Í samstarfi við Alþjóðateymi Reykjanesbæjar hefur Khalifa Mushib, skjólstæðingur samræmdrar móttöku flóttafólks í Reykjanesbæ, ákveðið að stefna til hátíðarhalda. Allir eru velkomnir til að upplifa fjölbreytta menningu með mat frá ýmsum heimshornum, þar sem ungir jafnt sem aldnir geta skemmt sér. Markmið hátíðarinnar er að menningarheimar Reykjanesbæjar mætist. Khalifa hefur mikla ástríðu fyrir matargerð og veit að matur er mannsins megin og góður grunnur til að sameina fólk.

Hann sótti um styrk fyrir hátíðina til Andrýmis, en Andrými er verkefni á vegum Reykjanesbæjar þar sem lögð er áhersla á að efla notkun á opnum svæðum í sveitarfélaginu og stuðla að sjálfbærri þróun þeirra svæða.

Fjölmenningarhátíðin Menningarheimar mætast verður haldin laugardaginn 3. júní frá klukkan 12:30 til 17:00. 

Dagskráin fer fram í Bókasafni Reykjanesbæjar, Ráðhústorgi og skrúðgarðinum þar sem boðið verður upp á fjölbreyttan mat frá ýmsum þjóðum og skemmtidagskrá fyrir börn. Frítt er á viðburðinn og allir hjartanlega velkomnir.