Flest gengið vel hjá Reykjanesbæ 2015 segir bæjarstjóri

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri segir árið 2015 hafa verið Reykjanesbæ hagstætt að flestu leyti nú þegar hann lítur um öxl á nýbyrjuðu ári. Atvinnuleysi hafi dregist verulega saman, bæjarbúum sem þurftu fjárhagsaðstoð hafi fækkað, fasteignamarkaður hafi lifnað við og skólastarf, íþróttir og menningarlíf hafi blómstrað.