- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
„Fólkið okkar“ er liður á samfélagsmiðlum Reykjanesbæjar, þar sem markmiðið er að varpa ljósi á öll þau fjölbreyttu störf sem unnin eru hjá bænum og allt það góða fólk sem þar starfar. Að þessu sinni kynnum við Ósk Matthildi Arnarsdóttur, ráðgjafa í endurhæfingu hjá Björginni geðræktarmiðstöð.
Ósk Matthildur er 32 ára og býr í Suðurnesjabæ ásamt unnusta sínum Ása Skagfjörð og dætrum þeirra, Theu Guðrúnu og Fanneyju Dórótheu, sem eru þriggja og fimm ára. Hún er fædd og uppalin í Sandgerði, gekk í grunnskólann í Sandgerði og Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún er með einkaþjálfarapróf frá Íþróttaakademíu Keilis, lauk markþjálfunarnámi hjá Profectus árið 2019 og starfaði við þjálfun um tíma. Árið 2023 lauk hún BS-gráðu í næringarfræði og MSc í Lýðheilsuvísindum í fyrra. Ósk stundar líkamsrækt og yoga af áhuga, nýtur þess að ferðast og gera skemmtilega hluti með fjölskyldunni og vinkonum, og elskar að vaxa í lífi og starfi og læra nýja hluti.
Hún hóf störf hjá Reykjanesbæ í janúar 2024 sem ráðgjafi í endurhæfingu hjá Björginni, geðræktarmiðstöð sem veitir bæði endurhæfingu og athvarfsþjónustu fyrir fólk með geðheilsuvanda. Í starfi sínu sinnir hún einstaklingsbundinni ráðgjöf, viðtölum, greiningum, gerð meðferðar- og þjónustuáætlana auk þess að sjá um fræðslu og námskeiðahald fyrir notendur. Þá tekur hún þátt í skipulagningu á viðburðum og samveru í athvarfinu, þar sem áhersla er lögð á að rjúfa félagslega einangrun og skapa rými þar sem allir fá að vera nákvæmlega þeir sjálfir.
„Það sem veitir mér mestan innblástur er að fá að styðja fólk í að styrkja sig í daglegu lífi, efla sjálft sig og sjá það finna sína leið áfram,“ segir Ósk. „Mér finnst dýrmætt að fá að vera hluti af þeirri vegferð og sjá fólk öðlast aukna trú á eigin getu. Ég er líka ótrúlega þakklát fyrir að fá að vinna með svona sterku, styðjandi og faglegu kvennateymi. Andrúmsloftið hjá okkur í Björginni er hlýtt og gott alla daga, og það veitir mér mikla ánægju að fá að taka þátt í að skapa þetta örugga umhverfi þar sem öllum er mætt þar sem þau eru.“
Við þökkum Ósk kærlega fyrir að opna dyrnar að sínu starfi og hlökkum við mikið til að halda áfram að segja frá Fólkinu okkar. Við erum svo sannarlega rík af mannauði í Reykjanesbæ.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)