Fólkið okkar – Sigrún Gróa

„Fólkið okkar“ er liður á samfélagsmiðlum Reykjanesbæjar, þar sem markmiðið er að varpa ljósi á öll þau fjölbreyttu störf sem unnin eru hjá bænum og allt það góða fólk sem þar starfar. Að þessu sinni kynnum við Sigrúnu Gróu, kennara við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, sem var nýverið að ljúka sínu 25. starfsári hjá Reykjanesbæ.

Sigrún Gróa sem er að verða 50 ára núna á dögunum er fædd og uppalin í Keflavík. Þar hefur hún búið nánast alla sína ævi, fyrir utan tvö ár í Reykjavík og tvö sumur í Borgarnesi, þar sem hún og eiginmaður hennar, Garðar Newman, hófu búskap. Saman eiga þau fjögur börn, Þórunni Maríu, Magnús Má, Jón Inga og Davíð Þór, sem fædd eru á árunum 2002 til 2012.

Eftir grunnskóla lá leiðin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og þaðan í Kennaraháskóla Íslands, þar sem hún útskrifaðist frá tónmenntakennaradeild árið 2001. Tónlistin hefur fylgt henni frá unga aldri en hún hóf píanónám í Tónlistarskóla Keflavíkur aðeins níu ára gömul og hefur spilað allar götur síðan. Í frítíma sínum nýtur hún þess að verja tíma með fjölskyldunni, prjóna og hekla. Þá hefur hún setið í sóknarnefnd Keflavíkurkirkju í tæp 20 ár og syngur með kirkjukórnum, sem veitir henni mikla gleði og ánægju.

Í janúar árið 2001 hóf Sigrún störf við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og var því nýverið að ljúka sínu 25. starfsári hjá Reykjanesbæ. Hún byrjaði á að kenna á píanó og fljótlega tók hún einnig að sér forskólakennslu. Í því starfi kynntist hún öllum börnum í 2. bekk í Heiðarskóla í meira en tvo áratugi. Á síðari árum hefur hún bætt við sig Suzuki-kennaranámi og tók við Suzuki blokkflautudeild tónlistarskólans. Hún segir það hafa verið bæði skemmtilegt og gefandi að bæta þeirri kennslu við sitt starf. Suzuki-aðferðin er henni einnig persónulega kær, enda fóru þrjú af börnum hennar í gegnum slíkt hljóðfæranám.

„Mér finnst mjög gaman í vinnunni,“ segir Sigrún. „Að fá að taka þátt í því að börn alist upp með tónlist og sjá framfarir þeirra, hversu litlar sem þær eru, færir mér mikla gleði. Það er líka dásamlegt að sjá nemendur ná árangri með þrautseigju og aukinni þolinmæði. Hljóðfæranám er ekki alltaf auðvelt og fullt af áskorunum, en það er gott veganesti út í lífið.“

Hún segir tónlistina gefa lífinu fallega liti og gleði. Auk kennslunnar hefur hún sérstakt yndi af því að spila á blokkflautu með nemendum sínum og starfa sem meðleikari á píanó. „Þar fæ ég stöðugt ný verkefni og áskoranir sem halda mér á tánum og gera starfið enn skemmtilegra.“

Við þökkum Sigrúnu kærlega fyrir að opna dyrnar að sínu starfi og fyrir að fylla líf barna og ungmenna af tónlist og gleði. Við hlökkum við mikið til að halda áfram að segja frá Fólkinu okkar.