Forvarnardagur ungra ökumanna

Nemendur á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja tóku þátt í forvarnardegi sem haldinn er tvisvar á ári, á haust- og vorönn skólans.

Markmið dagsins er að fræða ungmenni sem mörg hver eru að stíga sín fyrstu skref í umferðinni og taka bílpróf á næstu misserum. Áhersla er lögð á þá ábyrgð sem fylgir því að vera ökumaður, sem og helstu áhættuþætti, svo sem hraðakstur, áhrif áfengis á akstur og mikilvægi trygginga þegar kemur að umferðarslysum. Með fræðslunni er leitast við að fækka slysum og auka öryggi í umferðinni.

Deginum var skipt í fimm lotur þar sem nemendur fengu fræðslu frá Lögreglan, Samgöngustofa, Slysavarnafélagið Landsbjörg, TM og Reykjanesbær. Meðal þess sem boðið var upp á var veltibíll og sviðsett umferðarslys sem gaf nemendum raunhæfa innsýn í afleiðingar slysa.

Forvarnardagurinn er mikilvægt fræðsla til aukins umferðaröryggis og gefur ungu fólki dýrmæt verkfæri til að taka upplýstar og ábyrgar ákvarðanir í umferðinni!